adhd
EINKATÍMAR
NÁMSKEIÐ
FRÆÐSLA
Í PERSÓNU OG Á NETINU
-
Ég er ADHD markþjálfi með sérhæfingu frá ADD Coach Academy í New York, BNA. Skólinn hefur alþjóðlega hæfnisvottun frá bæði ICF og PAAC sem eru alþjóðleg fagfélög markþjálfa og ADHD markþjálfa.
ADHD markþjálfun
-
skoða
-
greina
-
skilja
á döfinni
ADHD á kvennamáli
Næstu námskeið verða haldin vorið 2025. Sendið póst á adhdakvennamali@gmail.com fyrir nánari upplýsingar.
Fyrir
konur
LEIÐARVÍSIR AÐ EINFALDARA LÍFI Leggjum við grunn að bættu sjálfstrausti og jákvæðri sjálfsmynd
Námsleyfi
Frá og með janúar 2025 verður markþjálfun eingöngu á netinu og á kvöldin og um helgar.
Haustið 2024 hóf ég fjarnám í áfengis og vímuefnaráðgjöf hjá háskólanum á Akureyri með það að markmiði að geta stutt betur við skjólstæðinga mína. Mikil fylgni er á milli ADHD og fíknihegðunnar og sýna rannsóknir að hún geti verið allt að 60%. Í janúar 2025 byrja ég í starfsþjálfun hjá SÁÁ meðfram náminu. Til þess að ég geti einbeitt mér að því verkefni ætla ég að taka mér pásu frá markþjáfuninni í einhvern tíma.
Ég stefni samt að því að bjóða upp á tíma í fjarþjálfun um helgar og verða þeir tímar bókanlegir í gegnum e-mailið kristbjorg@adhdmarkthjalfun.is.
Hægt er að bóka tíma í ADHD markþjálfun fram til jóla á vefnum mínum adhdmarkthjalfun.is og einnig með því að senda mér póst.
Fréttabréf
Skráðu þig á póstlistann minn og fáðu fréttir af námskeiðum og viðburðum.